Erlent

Fyrstu útfarirnar í morgun

Minningarathöfn fór fram í Hermosillo í gær og fyrstu útfarirnar fóru fram í morgun.
Minningarathöfn fór fram í Hermosillo í gær og fyrstu útfarirnar fóru fram í morgun. Mynd/AP
38 börn, flest á aldrinum tveggja til fjögurra ára, létust í eldsvoðanum á dagheimilinu í Hermosillo í Mexíkó í fyrradag. Fyrstu útfarirnar fóru fram í morgun. Flest barnanna köfnuðu.

Þá slösuðust 33 börn alvarlega, hlutu mikil brunasár eða urðu fyrir reykeitrun. 142 börn voru á dagheimilinu þegar eldurinn kviknaði og voru þau í umsjá sex starfsmanna.

Felipe Calderon, forseti Mexíkó, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á brunanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×