Erlent

Róðurinn hjá Brown þyngist

Róðurinn hjá Gordon Brown þyngist nú með hverjum deginum sem líður. Líkur aukast á að þingkosningar verði boðaðar í Bretlandi.

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Lundúnarblaðið Daily Telegraph segir frá því í dag að nú hafi komið í ljós að fjöldaafsagnir ráðherra í bresku ríkisstjórninni í síðustu viku hafi verið hluti af skipulögðu samráði um að koma forsætisrsáðherranum frá.

Lord Mandelson, viðskiptaráðherra Bretlands, biður nú uppreisnarseggi í Verkamannaflokknum að hætta árásum sínum á forsætisráðherrann.

Mandelson segir í samtali við BBC1 fréttastofuna í Bretlandi að ef þriðji leiðtogi núverandi ríkisstjórnar líti dagsins ljós myndi það þýða að þingkosningar væru óhjákvæmilegar. Mandelson telur þó að enginn sé betri í starf forsætisráðherra nú en Brown sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×