Erlent

Jafngildir stórslysi að kjósa fyrr

Brian Lenihan, fjármálaráðherra Írlands, hugnast ekki þingkosningar.
Brian Lenihan, fjármálaráðherra Írlands, hugnast ekki þingkosningar.

Fjármálaráðherra Írlands segir að það myndi jafngilda stórslysi að rjúfa þing og boða til þingkosninga vegna fjármálakreppunnar sem leikið hefur eyjuna talsvert illa.

Fjölmargir vilja að gengið verði til kosninga fyrr en áætlanir gera ráð fyrir en þingkosningar eiga að fara fram næst árið 2012.

„Þingkosningar er það síðasta sem þjóðin og efnahagur landsins þarf á að halda núna," segir Brian Lenihan, fjármálaráðherra landsins.

Ráðherrann fullyrðir að kosningar og óvissan sem þeim fylgir muni trufla uppbyggingu fjármálakerfisins og auka vanda landsins enn frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×