Ætla að stækka landnemabyggð Ísraela á Vesturbakkanum 18. maí 2009 12:04
Ísraelar eru að hrinda í framkvæmd áætlunum um stækkun landnemabyggða á Vesturbakkanum. Bandaríkjamenn hafa þegar fordæmt þessar áætlanir. Verktakar fóru í gær til þess að skoða aðstæður í gamalli herstöð á Vesturbakkanum þar sem búið er að gefa grænt ljós á byggingu tuttugu íbúðahúsa. Í gær kom svo Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, til Bandaríkjanna þar sem hann mun eiga fund með Barack Obama, forseta. Bandaríkjamenn hafa síðan árið 2006 þrýst á Ísraela að hætta við þessar byggingaáætlanir og má gera því skóna að Obama muni frekar ræða það mál við forsætisráðherrann. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur lýst áætlanirnar ólöglegar. Síðan Ísraelar unnu sigur í sex daga stríðinu árið 1967 hafa þeir reist yfir eitthundrað landnemabyggðir á herteknu landi. Það er bæði á Vesturbakkanum og í austurhluta Jerúsalem. Þar búa um hálf milljón gyðinga innan um yfir þrjár milljónir Palestínumanna. Palestínumenn vilja fá austurhluta Jerúsalems sem höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns. Ísraelar segja hinsvegar að Jerúsalem verði aldrei aftur skipt. Benjamín Netanyahu segist vilja frið við Palestínumenn en hefur ekki gengið svo langt að ljá máls á sjálfstæðu ríki þeirra. Hann segir að fyrst verði Palestínumenn að viðurkenna Ísrael formlega sem ríki gyðinga.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira