Erlent

Gengst við 21 barni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hatchett hefur ekki náð þrítugsaldri en er samt faðir 21 barns. Mynd/ AFP.
Hatchett hefur ekki náð þrítugsaldri en er samt faðir 21 barns. Mynd/ AFP.
Desmond Hatchett, 29 ára gamall íbúi í Tennessee í Bandaríkjunum gengst við því að honum hafi verið alið 21 barn. Tvisvar sinnum voru honum alin fjögur börn á einu ári. Þetta kom fram þegar Hatchett var leiddur fyrir rétt í vikunni fyrir að standa ekki skil á meðlagsgreiðslum.

Hatchett heldur því fram að hann viti nöfn allra barna sinna, aldur þeirra og afmælisdaga. Hann segist ekki hafa verið að reyna að setja nein met. „Ég er hættur. Ég segi það eins og er, ég er hættur," sagði hann í samtali við WVLT svæðissjónvarpið. „Ég ætlaði ekki að eignast svona mörg börn. Þetta bara gerðist," sagði hann.

Hatchett er í láglaunastarfi og mun ekki geta greitt barnsmæðrum sínum ellefu full meðlög með börnunum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×