Utanríkismálanefnd vill afrit af samtali bankastjóranna Höskuldur Kári Schram skrifar 14. júlí 2009 12:00 Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, vill afskrift af samtali Davíðs við King.
Utanríkismálanefnd Alþingis hefur óskað eftir útskrift af samtali Davíðs Oddssonar, þáverandi Seðlabankastjóra og bankastjóra Englandsbanka sem á að hafa sagt að ekki væri ríkisábyrgð á Icesave reikningunum. Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, sagði í þættinum Málefnin á Skjá einum í gær að til væri upptaka af samtali sem hann átti við bankastjóra Englandsbanka. Þar á bankastjóri Englandsbanka að hafa sagt að hann teldi að íslenska ríkið bæri ekki ábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. Utanríkismálanefnd Alþingis óskaði í gær eftir útskrift af þessu samtali og var sú beiðni ítrekuð á fundi nefndarinnar í morgun. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, segir að samtöl seðlabankastjóra milli landa séu venjulega ekki gerð opinber. „En það hefur komið fram beiðni í utanríkismálanefnd að fá útskrift af þessu símtali þáverandi seðlabankastjóra íslands og bankastjóra Englandsbanka. og nú skulum við sjá hvort það verður afhent þar. Seðlabankstjóri núverandi lýsti því á fundi nefndarinnar í gær að hann hefði ekki aðstæður til þess að afhenda þá útskrift. Það þyrfti samþykki beggja aðilana. sem hlut áttu í máli. Við sjáum hverju þetta skilar," segir Árni Þór Í mati Seðlabankans sem kynnt var á fundi nefndarinnar í gær kemur fram að skuldir þjóðarbúsins verði um og yfir 200 prósent af vergri landsframleiðslu verði Icesave samkomulagið samþykkt. Formaður Framsóknarflokks segir þetta sýna að Íslendingar ráði ekki við Icesave. „Ef við miðum við viðmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá því í nóvember, þá eru þetta klárlega óbærilegar skuldir, ekki hægt að standa undir þeim. Ekki einu sinni hægt að halda þeim gangandi. Og það hlýtur að vera áhyggjuefni. Auk þess að mér skilst vanti inn í þessa tölu þannig að enn er ekki komin þessi endanlega niðurstaða sem menn hafa beðið svo lengi eftir," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks. Formaður utanríkismálanefndar telur hins vegar að þjóðin eigi fáa kosti í stöðunni. „Seðlabankinn er með lægri tölur en það sem talað hefur verið um sem hæsta mögulega þol þjóðarbúsins. Auðvitað eru þetta miklar skuldir og ég held að við vitum það öll. að þetta eru erfiðir tímar framundan. En það er álit Seðlabankans að við ráðum við þessar byrðar eins og þær eru settar fram í þeirra greinargerð og ég held að við þurfum fyrst og fremst að reyna að vinna okkur út úr þessu máli og ná sem mestri og breiðastri samstöðu um það," segir Árni Þór Sigurðsson.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira