Erlent

Sautján lík fundin eftir Air France-slysið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Brasilíski sjóherinn við leit á staðnum.
Brasilíski sjóherinn við leit á staðnum. MYND/Reuters

Alls hafa leitarmenn nú fundið 17 lík farþega Air France-þotunnar sem hrapaði í Atlantshaf fyrir rúmri viku vegna óútskýrðrar bilunar. Ein kenning um orsakir slyssins er að ísing hafi verið á hraðaskynjurum flugvélarinnar og segja talsmenn flugfélagsins að sett verði í forgang að ljúka við að skipta um slíka skynjara á þeim vélum sem fljúga lengri vegalengdir en vinna við það var hafin þegar slysið varð. Franskur kjarnorkukafbátur er á leiðinni á vettvang til að leita að flugritum vélarinnar en þeir geyma veigamikil gögn sem varpað gætu ljósi á hvað gerðist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×