Erlent

Blindur maður handtekinn fyrir umferðarlagabrot

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Blindur Breti um fimmtugt hélt að verið væri að láta hann hlaupa apríl þegar lögregla handtók hann fyrir fjölda umferðarlagabrota.

George Day missti alla sjón á báðum augum sjö ára gamall og hefur því, eins og gefur að skilja, ekki komið mikið nálægt stjórn ökutækja um sína daga. Það kom honum enda í opna skjöldu þegar tveir lögreglumenn birtust heima hjá honum í síðustu viku og tilkynntu honum að hann væri á leiðinni inn í klefa fyrir fjölda umferðarlagabrota síðustu mánuði.

Day, sem hefði talið að verið væri að láta sig hlaupa apríl ef ekki væri júnímánuður, átti ekki orð en tókst þó að útskýra fötlun sína fyrir lögregluþjónunum. Þeir tjáðu honum þá að hann yrði að mæta fyrir rétt og útskýra mál sitt fyrir dómara. Það gerði Day á föstudaginn og komst þá að því að líklegast hefði einhver óprúttinn ökumaður notfært sér nafn hans og persónuupplýsingar til að slá ryki í augu lögreglu og hefði nafnið því endað í lögregluskýrslum.

Slíkur auðkennastuldur hefur verið vaxandi vandamál í Bretlandi og víðar síðustu ár og hefur fólki meðal annars verið bent á að það geti dregið verulegan dilk á eftir sér að henda gömlu tölvunni á haugana þar sem hópur manna sérhæfi sig í að næla í persónuupplýsingar úr gömlum tölvubúnaði og notfæra sér í annarlegum tilgangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×