Erlent

Brown nýtur meiri stuðnings en ætlað var

Gordon Brown nýtur meiri stuðnings innan þingflokks Verkamannaflokksins en búist var við.
Gordon Brown nýtur meiri stuðnings innan þingflokks Verkamannaflokksins en búist var við.

Svo virðist sem Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sé hólpinn um stundarsakir hvað varðar hans pólitísku framtíð. Í kvöld fundaði Brown með þingflokki Verkamannaflokksins og eftir fundinn lýstu margir þingmenn yfir stuðningi við forsætisráðherrann.

Brown hefur átt undir högg að sækja vegna hneykslismála, afsagna ráðherra og afhroðs sem flokkur hans galt í nýafstöðnum sveitastjórna- og evrópuþingskosningum. Brown var fagnað með áköfu lófataki við upphaf fundarins sem stjórnmálaskýrendur segja benda til að hann njóti víðtækari stuðnings meðal þingmanna en talið hafi verið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×