Erlent

Ísraelar ætla frá Gaza

Óli Tynes skrifar

Hátt settur ísraelskur embættismaður sagði við Reuters fréttastofuna í dag að ríkisstjórnin muni koma saman til fundar í kvöld og að eftir það muni Ehud Olmert forsætisráðherra ávarpa þjóðina.

Embættismaðurinn sagði að ætlunin væri að tilkynna að aðgerðum væri lokið þar sem þær hefðu náð tilgangi sínum. Ísrael áskilji sér þó rétt til að grípa til aðgerða ef Hamas liðar haldi áfram að skjóta eldflaugum yfir landamærin.

Ef Hamas halda áfram að skjóta eldflaugum er erfitt að sjá hvaða tilgangi Ísraelar hafa náð. Réttlæting þeirra á innrásinni var einmitt að stöðva eldflaugaárásirnar.

Ef það hefur ekki tekist hlýtur að vakna spurning um til hvers var verið að drepa allt þetta fólk.

Yfir 1200 palestínumenn hafa fallið þar af 410 börn. Fimmþúsund og þrjúhundruð til viðbótar hafa verið limlestir í loftárásum og stórskotaliðsárásum.

Ísraelar hafa það náttúrlega í hendi sér að beita Hamas þvingunum með því að halda landamærunum að Gaza lokuðum. Það myndi auðvitað koma í veg fyrir allt endurreisnarstarf en gífurlegt tjón hefur orðið á mannvirkjum í þessu stríði.

Leiðtogar Hamas hafa hinsvegar sýnt það oftar en einusinni að þeir eru reiðubúnir til að bera slíkan fórnarkostnað. Hvort almenningur er sama sinnis er spurning.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×