Erlent

Maóistar krefjast afsagnar forseta Nepals

Frá mótmælunum í Katmundu í dag.
Frá mótmælunum í Katmundu í dag. Mynd/AP
Mótmæli héldu áfram í Katmandu, höfuðborg Nepals, í dag þegar maóistar kröfðust afsagnar Ram Baran Yadaf, forseti landsins.

Krísan í Nepal hófst þegar forsætisráðherrann, Pushpa Kamal Dahal, sagði af sér á mánudaginn að eigin sögn til að bjarga friðarferlinu frá árinu 2006 en það batt enda á blóðuga borgarastyrjöld, sem geisað hafði í áratug.

Ástæða afsagnarinnar var sú að forsetinn neitaði að fallast á ákvörðun forsætisráðherrans um að reka yfirmann hersins.

Dahal, sem er maóisti og fyrrverandi skæruliðaleiðtogi, hugðist

reka hershöfðingjann fyrir að hafa ekki framfylgt ákvæðum

friðarsamkomulagsins um að veita fyrrverandi skæruliðum inngöngu í herinn.

Frá því að mótmælin hófust hafa þau farið stigmagnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×