Erlent

Heppinn lottóspilari vann 26 milljarða

Heppnin var með lottóspilari sem vann 126 milljónir evra, jafnvirði ríflega 26 milljarða króna, í Evrópu lottóinu í gærkvöldi. Vinningurinn kom á miða sem keyptur var í sjoppu í Madríd á Spáni. Vinningshafinn gaf sig fram í dag en nafn hans hefur ekki verið gefið upp.

Níu Evrópulönd taka þátt í lottóinu. Vinningurinn er talinn sá stærsti í heimi sem komið hefur á einn miða í leik sem þessum. Næst stærsti vinningurinn í Evrópulottóinu var 150 evra árið 2005, sem er rúmir 19 milljarðar króna á núgengi. Hann komi í hlut Dolores McNamara frá Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×