ESB vill Íslendinga á undan Balkanskagaríkjunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júlí 2009 14:20 Carl Bildt er utanríkisráðherra Svíþjóðar og sagður ákafur stuðningsmaður þess að Íslendingar sæki um.
Mælt verður með því að Ísland fari fram fyrir Balkanskagalöndin í röð umsækjenda um aðild að Evrópusambandinu þegar utanríkisráðherrafundur sambandsins mun fjalla um umsókn Íslendinga á mánudag í næstu viku. Þá mun ráðherrafundur utanríkisráðherra Evrópusambandsins senda framkvæmdastjórn Evrópusambandsins yfirlýsingu með ósk um að metið verði að hve miklu leyti íslensk lög samræmast löggjöf Evrópusambandsins, fullyrðir Bloomberg fréttaveitan, sem segist vera með uppkast að yfirlýsingunni undir höndum. Bloomberg segir að Evrópusambandið hafi ekki stækkað síðan að Búlgaría og Rúmenía voru tekin inn árið 2007. Þýskaland og Frakkland séu mótfallinn því að taka inn lítt þróuð ríki í suðaustur Evrópu, einkum Tyrkland. Öðruvísi sé farið með Ísland enda hafi verg framleiðsla hér verið um 37 þúsund bandaríkjadalir á hvern íbúa árið 2007, meiri en í nokkru öðru ríki innan Evrópusambandsins, að undanskildu Lúxemburg. Bloomberg segir að Svíar leggi á það áherslu að aðildarviðræður við Íslendinga geti hafist í janúar 2010. Orðalag yfirlýsingarinnar frá utanríkisráðherrunum geti hins vegar breyst því hátt settir embættismenn innan ESB deili um það hvernig hægt sé að útskýra hraðmeðferð á umsókn Íslendinga fyrir ríkjunum á Balkanskaga, sem hafa beðið mun lengur en Íslendingar eftir inngöngu. Makedónía sótti um aðild árið 2005 og er enn að bíða þess að aðildarviðræður geti hafist. Þá sótti Svartfjallaland um í desember og Albanía sótti um í apríl.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira