Erlent

Hamas ætla að hætta hernaðaraðgerðum

Ísraelskur skriðdreki utan við Gaza borg. Mynd/ AP.
Ísraelskur skriðdreki utan við Gaza borg. Mynd/ AP.

Hamas samtökin tilkynntu í dag að þau myndu hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa Ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá Gaza ströndinni.

Ísraelar lýstu yfir einhliða vopnahléi á miðnætti síðastliðna nótt. Talsmaður Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, sagði að þeir myndu sjá hvernig framvindan yrði. Þeir vilji fara frá Gaza og muni gera það svo fljótt sem auðið er.

Bæði fulltrúi Hamas og Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna eru í Kaíró til viðræðna við Hosni Mubarak forseta Egyptalands. Mubarak er að reyna að koma á langvarandi vopnahléi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×