Erlent

Api tók rafmagn af 7.000 japönskum heimilum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Apa nokkrum tókst að rjúfa rafstraum til um það bil 7.000 heimila í Aomori-héraðinu í Japan á þriðjudaginn. Apinn komst inn í spennistöð svæðisins og tók að fikta þar í ýmsum rofum þar til hann greip um aðalöryggi stöðvarinnar og fékk heiftarlegt rafstuð. Starfsmaður rafveitunnar fann dýrið liggjandi afvelta en þó á lífi í spennistöðinni þegar hann kom á vettvang. Á fjórðu klukkustund tók að koma rafmagninu aftur á þau 7.000 heimili sem urðu rafmagnslaus við fiktið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×