Obama vill byrja upp á nýtt Guðjón Helgason skrifar 4. júní 2009 12:10
Barack Obama Bandaríkjaforseti vill nýtt upphaf í samskiptum Bandaríkjanna og Múslimaríkja. Múslimatrú sé ekki vandamálið í baráttunni við öfgamenn heldur eitthvað sem nota skuli til að boða frið. Þetta sagði forsetinn í ávarpi í Egyptlandi í morgun. Með heimsókn sinni til Mið-Austurlanda vill Bandaríkjaforseti styrkja samband Bandaríkjanna við ríki í þessum heimshluta og fá leiðtoga þeirra í samstarf til að koma friðarviðræðum milli Ísraela og Palestínumanna á skrið. Athygli vekur að Obama skuli fara þá leið að heimsækja Arabaríki áður en hann hefur tilkynnt um heimsókn til Ísraels. Fer hann þar aðra leið en flestir fyrirrennarar hans sem margir hafa farið fremur snemma á ferlinum í opinbera heimsókn til Ísraels og áður en til Arabaríkja er komið. Þykir þetta til marks um þá áherslu sem forsetinn leggi á að ná sáttum milli Bandaríkjanna og Múslimaríkja. Obama fundaði með Abdúlla konungi Sádí Arabíu í Riyadh gær og síðan með Hosni Mubarak, forseta Egyptlands, í Kaíró í morgun. Síðan var komið að ræðu Obama í Háskólanum í Kaíró sem beðið var eftir með mikilli eftirvæntingu. Hann sagði að Bandaríkjamenn vildu nýtt upphaf í samskiptum við Múslimaríki. Hann bauð þó ekki fram neinar tillögur um hvernig þoka mætti friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs sem stjórnmálaskýrendur segja að hafi án efa valdið nokkrum vonbrigðum. Obama lagði þó áherslu á að aðeins yrði hægt að leysa deilur Palestínumanna og Ísraela með því að stofna Palestínuríki við hlið þess ísraelska. Einnig yrðu Ísraelar að hætta landtöku. Obama lagði áherslu á að líkt og margir á vesturlöndum teldu væri múslimatrú ekki vandinn í baráttunni við öfgaöfl heldur yrði að nota trúnna til að boða frið. Hvað önnur mál varðaði sagði Obama Bandaríkjamenn ekki hafa áhuga á að hafa herstöð í Afganistan og að Íranar ættu að hafa aðgang að kjarnorku til friðsamlegra nota. Um leið yrðu þeir að gerast aðilar að sáttmálum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Osama bin Laden, leiðtogi Al Kaída hryðjuverkasamtakanna, slær hins vegar á útrétta sáttahönd Obama í nýrri tuttugu og fimm mínútna hljóðupptöku sem spiluð var að hluta á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera í gær. Hún var birt í heild sinni á vefsíðu íslamista í dag. Þar segir bin Laden að þeir sem mynduðu bandalag við kristna menn og gyðinga væru að fara þvert á múslimatrú. Hann hvatti bandamenn sína til að berjast gegn heiðingjum í múslimaríkjum sem vildu slíkt bandalag. Ali Khamenei, erkiklerkur í Íran, sagði í ræðu í morgun að Mið-Austurlandabúar hötuðu Bandaríkin ákaft og því væri erfitt að breyta með slagorðum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Sjá meira