Erlent

Hollenskur kokkur vekur viðbjóð í Afganistan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Á leið úr mötuneytinu. Ástralskir hermenn í Tirin Kot eru ekki sáttir við matseld Hollendinga þar.
Á leið úr mötuneytinu. Ástralskir hermenn í Tirin Kot eru ekki sáttir við matseld Hollendinga þar. MYND/Reuters

Ástralskir hermenn í Afganistan eru að fá sig fullsadda af hollenskum kokki og matseld hans í Tirin Kot-herstöðinni.

Hermálayfirvöld í Ástralíu þurftu að bregðast skjótt við og senda matsveina sína til Afganistan eftir að hermennirnir hótuðu nánast að grípa til vopna vegna óánægju sinnar með matseld hollenska hersins í Tirin Kot-herstöðinni en í mötuneytinu þar hefur hollenskur kokkur annast eldamennskuna og greinilega ekki tekist vel upp.

Í Tirin Kot dvelja um 800 ástralskir hermenn við hlið hollenskra starfsbræðra sinna og er smekkur þeirra á mat greinilega ólíkur. Angus Houston, marskálkur í ástralska flughernum, segir vandamálið ef til vill ekki vera bundið við hollenskan mat heldur hreinlega evrópskan. Hann búi hreinlega ekki yfir þeim ferskleika og gæðum sem Ástralar eigi að venjast og oft sé þörf en nú nauðsyn að bjóða þó að minnsta kosti upp á sæmilegt fæði á vinnustað þar sem menn leggja líf sitt og limi í stórhættu nánast daglega í stríði við talibana og annan varasaman mannskap.

Houston segir ástralska herinn að sjálfsögðu hlusta á sína menn og auðvitað verði síður en svo daufheyrst við kröfum þeirra um ástralska matseld eins og hún gerist best.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×