Erlent

Vilja kaupa vopnakerfi á 7 milljarða dollara

Sameinuðu arabísku furstadæmin vilja ganga til viðræðna við bandaríska vopnaframleiðandann Lockheed Martin um að kaupa eldflaugavarnakerfi sem þróað var fyrir bandaríkjaher.

Gangi kaupin eftir er talið að Sameinuðu arabísku furstadæmin þurfi að greiða nálægt 7 milljörðum bandaríkjadollara fyrir eldflaugavarnarkerfið.

Fyrst þurfa bandarísk hermálayfirvöld hins vegar að leggja blessun sína yfir samninginn en Reuters segir frá því að lögfræðingar bandaríska hersins séu að fara yfir kauptilboðið.

Bandaríski herinn mun taka eldflaugavarnarkerfið í notkun árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×