Fékk leyninlega aukafjárveitingu vegna Íransmála 30. júní 2008 12:26
Bandaríkjaforseti fékk í fyrra þrjátíu og þriggja milljarða króna leynilega aukafjárveitingu frá leiðtogum á Bandaríkjaþingi til að herða á aðgerðum leyniþjónustunnar gegn klerkastjórninni í Íran. Margir þingmenn spyrja nú hvort féð hafi verið notað í ólöglegar aðgerðir, svo sem eins og mannrán. Þetta kemur fram í grein eftir bandaríska rannsóknarblaðamanninn Seymour Hersh sem bandaríska tímaritið New Yorker birtir. Hersh er Pulitzer-verðlaunahafi sem afhjúpaði fjöldamorð bandarískra hermanna í My Lai í Víetnam 1968 og nú síðast illa meðferð á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Fyrir rúmum tveimur árum birti hann grein þar sem hann staðhæfði að bandarísk stjórnvöld væru að undirbúa stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma veg fyrir að þeim komi sér upp kjarnorkuvopnum. Bush Bandaríkjaforseti vísaði því alfarið á bug. Í nýrri grein, sem birt var á vef blaðsins í gær, vitnar Hersh til formlegrar beiðni Bush Bandaríkjforseta um rúmlega þrjátíu milljarða króna aukafjárveitingu sem hann sendi leiðtogum á Bandaríkjaþingi. Sú beiðni er bundin leynd vegna þjóðaröryggis. Orðið var við henni. Samkvæmt heimildum Hersh átti að nota féð til að herða á leynilegum aðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Veita átti andspyrnuhópum fjárstuðning og afla enn frekari gagna um kjarnorkuáætlun leiðtoga í Teheran. Tilgangurinn var að grafa undan þeim og lokatakmarkið að skipta út Ahmadinajad Íransforseta fyrir lýðræðiselskan leiðtoga. Samkvæmt grein Hersh eru þeir þingmenn sem samþykktu fjárveitinguna nú með efasemdir því komið hafi í ljós að peningarnir hafi farið í vafasamar aðgerðir sem ekki hafi verið skilgreindar í beiðninni. Írönum hafi verið rænt og þeir fluttir yfir landamærin til Íraks þar sem þeir hafi sætt pyndingum við yfirheyrslur. Ryan Crocker, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, segir þetta alrangt. Í greinni kemur einnig fram að fé hafi farið til illskeytts hóps sem berst gegn klerkastjórninni. Það kaldhæðislega er að sá hópur hefur löngum verið talinn tengjast al-Qaida.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira