Erlent

Kennedy í baráttu fyrir Obama eftir skurðaðgerð

Skurðaðgerð sem gerð var á öldungardeilarþingmanninum Edward Kennedy vegna krabbameins í heila þykir hafa heppnast afarvel.

Skurðaðgerðin fór fram á læknamiðstöðinni við Duke háskólann í Norður Karólínu. Kennedy er meðal vinsælustu og virtustu þingmanna Demókrataflokksins í Bandaríkjunum.

Hann segir í tilkynningu sem hann sendi frá sér eftir aðgerðina að þegar meðferðinni við krabbameininu ljúki muni hann snúa aftur til þingstarfa og gera sitt besta til að Barak Obama verði næsti forseti Bandaríkjanna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×