Telja Danmörku ofarlega á skotlista al-Qaeda 6. júní 2008 08:34 Íslamistar í Afghanistan mótmæltu birtingu teikningar af Múhameð spámanni með þessum hætti. MYND/Stöð 2
Dönsk stjórnvöld telja að landið sé nú komið í hóp helstu skotmarka al-Qaeda-samtakanna. Sé landið þar ásamt Ísreal, Bandaríkjunum og Englandi. Þetta kemur í kjölfar yfirlýsingar frá einum af foringjum al-Qaeda fyrr í vikunni. Í henni sagði meðal annars að fleiri árásir væru í vændum gagnvart vantrúarmönnum í Danmörku. Jafnframt var þess krafist að Danir bæðust afsökunar á skopteikningunum af Múhammed sem ollu miklu írafári í fyrra. Sænski hryðjuverkasérfræðingurinn Magnus Ranstop hvetur dönsk stjórnvöld til að taka þessar hótanir grafalvarlega. Hann vill þó ekki meina að þörf sé á afsökunarbeiðninni. Hins vegar óttast hann að árásir á dönsk skotmörk víða um heim muni færast í aukana. Það sé reynslan af hótunum sem þessum. Í síðustu viku tilkynnti forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar að al-Qaeda væri á undanhaldi í heiminum. Ranstop gefur lítið fyrir þá yfirlýsingu og segir hana meira byggða á pólitískum ástæðum í Bandaríkjunum en raunveruleikanum í heiminum.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Fleiri fréttir Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Sjá meira