Erlent

Barak vill að Olmert víki vegna spillingarásakana

Ehud Olmert sætir mikilli gagnrýni í heimalandi sínu og háværar kröfur eru um afsögn.
Ehud Olmert sætir mikilli gagnrýni í heimalandi sínu og háværar kröfur eru um afsögn. MYND/AP
Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels og formaður Verkamannaflokksins, fór í dag fram á það að nafni hans Ehud Olmert forsætisráðherra segði af sér sem forsætisráðherra vegna rannsóknar á meintri spillingu hans. Þá sagði hann að Verkamannaflokkurinn gæti farið fram á að kosningum verði flýtt ef Olmert neitaði að fara.

Olmert viðurkenndi fyrr í mánuðinum að hafa þegið fé frá bandarískum kaupsýslumanni í kosningasjóð sinn en neitaði að það væru mútur. Yfirvöld í Ísrael rannsaka nú málið en kaupsýslumaðurinn hefur viðurkennt að hafa gefið Olmert hundruð þúsunda dollara. Rannsakendur vilja komast að því hvort peningagjafirnar hafi verið gefnar upp til þar til bærra yfirvalda og hvort forsætisráðherrann hafi endurgoldið þær á einhvern hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×