Erlent

Dregur úr hjartaáföllum í kjölfar reykingabanns

Hjartaáföllum hefur fækkað á helmingi allra spítala á Englandi í kjölfar þess að reykingabann var sett á skemmtistöðum þar í landi. Hjartaáföllum hefur fækkað um 1348 á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá því banninu var komið á, borið saman við sama tímabil í fyrra. Það þýðir að hjartaáföllum hefur fækkað um þrjú prósent frá því banninu var komið á.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×