Allt að 70 prósenta afsláttur í breskum verslunum fyrir jólin Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. desember 2008 08:51 Oxford-stræti í jólabúningi.
Breskir verslunareigendur veita allt að 70 prósenta afslátt síðustu klukkustundir jólaverslunarinnar og berjast hart um hylli neytenda. „Dagr er upp kominn, dynja hana fjaðrar, mál er vílmögum at vinna erfiði." Þessar ljóðlínur má lesa í Bjarkamálum hinum fornu og það er engu líkara en verslunarstjórar breskra glæsiverslana hafi rétt í þessu verið að leggja það ágæta fornkvæði frá sér. Þeir stara nú möttum og stjörfum augum fram á síðustu 48 klukkustundirnar af jólaversluninni og ekki virðist laust við að örvæntingar gæti að minnsta kosti sums staðar. Nú hefst nefnilega baráttan um hópinn sem bíður með jólainnkaupin fram á síðustu mínútu og þar eru engin grið gefin. Zavvi-bókaverslanirnar gefa allt að 70 prósenta afslátt þessar lokamínútur og ef það hljómar ekki nógu öfgafengið byrjar innréttingaverslunin B & Q janúarútsölu sína á aðfangadagskvöld, heilli viku áður en janúar rennur upp. Neytendur eru engir asnar og þess vegna er það óvenjustór hópur í ár sem bíður með lokakaupin þar til í dag og á morgun. Þeir vita að verslunareigendur eru tilneyddir að gefa ríflega afslætti enda óvíst hvaða verslanir standa enn í lok janúar. Bretar fá sér kannski ekki kæsta skötu í dag en þeir geta fengið alla 33 þættina af Inspector Morse á 39,99 pund hjá Zavvi.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira