Erlent

Nunnur á hjólaskautum reka vinsælt barnaheimili

Nunnur á hjólaskautum reka nú eitt vinsælasta barnaheimilið í borginni Zagreb í Króatíu.

Barnaheimilið er ætlað börnum frá fátækum heimilum en eftir að það spurðist út að nunnurnar sem reka það fara allra sinna ferða á hjólaskautum hefur eftirspurn eftir plássi aukist gífurlega.

Systurnar Mateja og Kresimira segja að upphaflega hafi þær notað skautana til að halda sér í formi en nú eru þær á þeim allan daginn. Og þær láta það ekki stoppa sig þótt önnur þeirra hafi nýlega fótbrotnað þar sem hún skautaði um barnaheimilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×