Erlent

Vilja athuga hvort kjarnakljúf sé að finna í Sýrlandi

Mohamed ElBaradei.
Mohamed ElBaradei.

Kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna vill að Sýrland leyfi eftirlitsmönnum að koma inn í landið til þess rannsaka hvort einhverjar sannanir séu að finna fyrir því að Sýrlendingar séu að byggja kjarnakljúf. Sýrlendingar hafa hvað eftir annað neitað að þeir hafi nokkra kjarnorkuvopnaáætlun né að þeir hafi átt nokkurt slíkt samstarf við Norður-Kóreu.

Um er að ræða svæði í Sýrlandi sem Ísraelsmenn vörpuðu sprengjum á í september síðastliðnum vegna gruns um að þar ætti sér stað þróun kjarnorkuvopna. Sýrlendingar segja hins vegar að þar sé ónotuð herstöð í byggingu.

Mohamed ElBaradei hjá Alþjóðlegu kjarnorkustofnuninni (IAEA) gagnrýndi í apríl bæði Bandaríkin fyrir að liggja á upplýsingum um þetta mál og Ísraelsmenn fyrir að sprengja upp svæðið áður en IAEA gat kannað það. Seinna í mánuðinum staðhæfðu Bandaríkjamenn að Sýrlendingar hefðu verið að smíða kjarnakljúf á svæðinu.

Það hefur nú verið ákveðið að eftirlitsmenn muni fara til Sýrlands 22-24 júní næstkomandi og segist ElBaradei á fréttavef BBC hlakka til fullrar samvinnu við Sýrlendinga í því máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×