Erlent

Birnir ollu uppistandi á veitingastað í Rúmeníu

Hungraðir birnir ollu miklu uppistandi á veitingahúsi í borginni Sinaia í Rúmeníu er þeir gengu þar inn og hófu að éta af diskum viðstaddra.

Gestir veitingahússins flúðu á brott en þá gengu birnirnir inn í eldhús staðarins og héldu áti sínu áfram. Þeir héldu svo á brott áður en lögreglan kom á staðinn.

Um var að ræða birnu með tvo stálpaða húna sína. Eigandi veitingahússins segir að þetta hafi verið eins og ævintýrið um Gullinbrá og birnina þrjá bara með öfugum formerkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×