Erlent

Tólf létust í skotárás í flóttamananbúðum í Kongó

Uppreisnarmenn frá Rúanda drápu að minnsta kosti tólf Kóngóska borgara þegar þeir hófu skothríð í flóttamannabúðum í lýðræðislega hluta Kongó í dag.

Þetta segir starfsmaður Sameinuðu þjóðanna. „Þeir skutu handahófskennt inn í flóttamannabúðirnar. Tólf létust og 24 eru særðir," sagði Jean-Paul Dietrich talsmaður herliðs Sameinuðu þjóðanna við Reuters nú í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×