Of hættulegt að birta niðurstöður í Simbabve 9. apríl 2008 12:08 George Chikumbirike lögmaður mætir í Hæstarétt í Harare í morgun. MYND/AFP
Lögmaður kosningastjórnar Simbabve sagði í dag að of hættulegt væri fyrir Hæstarétt landsins að birta niðurstöður forsetakosninganna eins og stjórnarandstan hefur farið fram á. Lýðræðisflokkurinn MDC hefur höfðað mál til að fá úrslit kosninganna 29. mars birtar, en hann segir að leiðtogi flokksins Morgan Tsvangirai hafi unnið. Hann ætti að verða forseti og enda þannig 28 ára valdatíð Robert Mugabe forseta. Mugabe er að reyna að tefja að niðurstöðurnar verði birtar. Fyrirhuguð endurtalning gefur honum einnig tíma til að undirbúa aðra umferð kosninganna á móti Tsvangirai, ef til hennar kæmi. George Chikumbirike lögmaður Kosninganefndarinnar sagði við dómara hæstaréttar að það væri hættulegt að hans mati að fyrirskipa að niðurstöðurnar yrðu birtar; „þar sem utanaðkomandi neyðarástand gæti komið upp sem ZEC flokkurinn geti ekki haft stjórn á." Hann gaf ekki nánari skýringar en virtist vera að vísa til vaxandi spennu í landinu vegna ófaranna í kjölfar kosninganna. Chikumbirike neitaði að segja hversu langt ZEC flokkurinn hefði gengið í að undirbúa tilkynningu á kosningaúrslitunum. Hann sagði aðeins að það væru trúnaðarupplýsingar sem nefndin hefði rétt á að birta þegar hún væri tilbúin. Gagnrýnendur Mugabe saka hann um að hafa lagt efnahag Simbabve í rúst. Mugabe heldur því hins vegar fram að Vesturlöndum sé um að kenna. Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur lýst yfir áhyggjum á töfum úrslitanna.se Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur lýst yfir áhyggjum á töfum úrslitanna.Lýðræðisflokkurinn heldur því fram að Mugabe hafi komið af stað bylgju ofbeldis gegn stjórnarandstöðunni frá kosningunum og óskað eftir því að Afríkuþjóðir grípi inn í til að fyrirbyggja frekari blóðsúthellingu.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Sjá meira