Erlent

Menntaskólastúlka er þekktasti bloggari Svíþjóðar

Hún er sænsk, ljóshærð og 17 ára gömul og hefur unnið sér það til frægðar að vera þekktasti bloggari Svíþjóðar nú um stundir.

Menntaskólaneminn Isabella Löwengrip er orðin svo vinsæl að hún þénar milljónir króna á bloggi sínu. Að jafnaði lesa um 270.000 manns blogg hennar á viku hverri og það hefur leitt til þess að fyrirtæki allt frá vefverslunum upp í Hennes & Mauritz auglýsa á vefsíðu hennar.

Upphafleg bloggaði hún um stjórnmál en nú er það mest um föt og tískustrauma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×