Erlent

Serbar ráðast á landamærastöðvar Kosovo

Lögregla rannsakar sprengju fyrir utan byggingu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Mitrovica í Kosovo í gær.
Lögregla rannsakar sprengju fyrir utan byggingu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Mitrovica í Kosovo í gær. MYND/AFP

Lögreglan í Kosovo hefur óskað eftir aðstoð friðargæsluliða Nato eftir að Serbar, sem eru á móti sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo, kveiktu í landamærastöð og réðust á aðra. Lögreglan leitaði skjóls í göngum við landamærastöð nálægt Zubin Potok þegar meira en eitt þúsund mótmælendur reyndu að rífa hana niður. Bærinn er í norðurhluta Kosovo þar sem Serbar eru í meirihluta.

Heimildarmaður Kosovo lögreglunnar sagði Reuters í Pristina að óskað hefði verið eftir því að Nato sendi þyrlu til að flytja lögreglumennina á brott. Friðargæsluliðar Nato í héraði eru meðal annars frá Frakklandi, Danmörku, Belgíu og Armeníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×