Michael Ballack er leikmaður 36. umferðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. apríl 2008 15:31 Michael Ballack, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Michael Ballack skoraði bæði mörk Chelsea í 2-1 sigri liðsins á Manchester United um helgina og er leikmaður 36. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar Smelltu hér til að sjá myndband af Michael Ballack, leikmanni 36. umferðar. Ballack stjórnaði miðjuspili Chelsea af miklu öryggi í toppslagnum gegn United um helgina í fjarveru Frank Lampard. Svo virðist reyndar að Ballack þrífist betur á vellinum þegar að Lampard er ekki að spila en fimm af þeim sex mörkum sem hann hefur skorað í deildinni í vetur hafa öll komið þegar Lampard var ekki á vellinum. Hann skoraði dýrmætt sigurmark Chelsea í leiknum úr vítaspyrnu sem hann tók af miklu öryggi þegar skammt var til leiksloka. Sigur liðsins þýðir að liðin eru nú jöfn að stigum þegar tvær umferðir eru eftir en United er með mun betra markahlutfall. Ballack var lengi fjarverandi í haust vegna meiðsla en hann skoraði í sínum fyrsta leik í deildinni í vetur, 4-4 jafntefli gegn Aston Villa á öðrum degi jóla. Þá kom hann reyndar inn á fyrir Lampard á 26. mínútu sem þurfti þá að fara af velli vegna meiðsla. Síðan þá hefur hann komið við sögu í sextán leikjum af þeim átján sem Chelsea hefur spilað í deildinni, þar af fjórtán sinnum í byrjunarliðinu. Chelsea hefur ekki tapað leik í deildinni eftir áramót og unnið ellefu af þeim fjórtán þegar Ballack hefur verið í byrjunarliðinu. Niðurstaðan í hinum þremur var jafntefli, rétt eins og í báðum leikjunum þegar Ballack kom inn á sem varamaður. Ferill Ballack er flestum vel kunnugur. Hann hefur verið lykilmaður í þýska landsliðinu um árabil og kom til Chelsea frá Bayern München árið 2006. Þar áður lék hann með Leverkusen árin 1999-2002 og fór með liðinu í úrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili sínu hjá félaginu. Með Bayern vann hann þrívegis tvöfalt - þýska meistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn - en hann náði aldrei að standa almennilega undir væntingum í leikjum Bayern í Meistaradeild Evrópu. Hann var oft gagnrýndur vegna þess, til að mynda af forráðamönnum félagsins. Ballack átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Chelsea og sumir halda því fram að hann sé fyrst núna að ná sér almennilega á strik hjá þeim bláklæddu. Hann verður væntanlega í eldlínunni með Chelsea gegn Liverpool í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Nafn: Michael BallackFæddur: 26. september, 1976 í Görlitz í Saxlandi í Þýskalandi.Félög: Kaiserslautern, Bayer Leverkusen, Bayern München og Chelsea.Númer: 13Lið vikunnar:Markvörður: Marcus Hahnemann, Reading.Vörn: Danny Higginbotham, Sunderland Ashley Cole, Chelsea Joseph Yobo, EvertonMiðja: Sebastian Larsson, Birmingham Jermaine Pennant, Liverpool Michael Ballack, Chelsea Mark Noble, West HamSókn: John Carew, Aston Villa Emmanuel Adebayor, Arsenal Diomansy Kamara, Fulham
Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn HM-leikmaður í glannakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Sjá meira