Rúnar Júl á stuttermabol 20. desember 2008 06:45 Jón Sæmundur Auðarson í stutt-ermabol sem hann hannaði með mynd af Rúnari Júlíussyni. Bjartmar Guðlaugsson saknar Rúnars sárt.
Listamaðurinn Jón Sæmundur Auðarson er í óða önn að hanna stuttermaboli með myndum af Rúnari Júlíussyni. Ágóði bolanna rennur til nýs minningarsjóðs Rúnars. „Þetta er hugmynd sem við ákváðum saman, ég og fjölskylda hans, og ég veit að hann hefði líka fílað þetta sjálfur," segir Jón. „Rúnar kom alltaf hérna ef það voru tónleikar, þá dressaði ég hann upp," segir hann. „Hann var hér fastagestur og kom oft hérna á mánudagsrúntinum." Mismunandi myndir af Rúnari verða á bolunum, þar á meðal portrett og mynd af honum með bassann. Salan á fyrstu bolunum er hafin og smám saman munu fleiri tegundir bætast við. Verðið er í kringum fimm þúsund krónur. Orðrómur hefur verið uppi um að minningartónleikar um Rúnar séu fyrirhugaðir. Bjartmar Guðlaugsson, einn besti vinur Rúnars, segir að ekkert hafi verið ákveðið um það en býst við að slíkir tónleikar verði haldnir. „Það er minningin sem hann skilur eftir sig, þetta frábæra þriggja diska safn sem er bara innihald og umbúðir, alveg meistaraverk. Það er það sem maður vill að sé haldið fram í minningunni í dag," segir Bjartmar. „Hann lifir með þjóðinni í verkum sínum alla tíð. Hann víkur ekki úr huga manns þessa dagana, þessi dásamlegi maður. Höggið er mikið og söknuðurinn mikill, það finnur maður svo víða." Bjartmar segir að útgáfufyrirtæki Rúnars, Geimsteinn, sé í miklum blóma um þessar mundir. „Þessar afurðir sem hafa komið frá honum hjá elsta útgáfufyrirtæki landsins hafa verið svakalega flottar á síðustu árum. Svo var það sem hann hafði gefið út sjálfur. Maður horfir sjálfsagt svolítið öðruvísi á það núna en maður gerði. Hann var ofboðslega kaldur að fjalla bæði um dauðann og ástina. Hann virtist ekki óttast neinar tilfinningar," segir Bjartmar, sem er í góðu sambandi við fjölskyldu Rúnars. „Það er svo mikið af góðum minningum sem má ekki gleyma því það koma svo mörg bros fram í sorginni." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lífið Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Sjá meira