Tetródótoxínmaðurinn hafði líftryggt konuna fyrir 5.000.000 dala Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. júlí 2008 16:47 Bachner leiddur úr réttarsalnum í síðustu viku. MYND/AP
Edward F. Bachner, sem handtekinn var í úthverfi Chicago fyrir hálfum mánuði fyrir að hafa í fórum sínum eitrið tetródótoxín, reyndist hafa líftryggt eiginkonu sína fyrir fimm milljónir bandaríkjadala, upphæð sem fallið hefði honum í skaut við fráfall hennar. Bachner var ákærður fyrir handhöfn eitursins í síðustu viku. Tetródótoxín, sem finnst í ákveðinni tegund ígulkerja, er bráðdrepandi og nægir eitt milligramm af því til að drepa manneskju. Alríkislögreglan FBI handtók Bachner eftir að hann hafði pantað 64 ambúlur af efninu frá efnaframleiðendum í Kaliforníu og New Jersey. Efnið var pantað gegnum Netið og lést Bachner vera læknir þegar hann lagði pantanirnar inn en þeim er heimilt að hafa tetródótoxín í vörslum sínum. Sérákvæði um hryðjuverk Líftrygging eiginkonunnar, Rebeccu Bachner, hafði sérákvæði um hryðjuverk sem fólst í því að dæi hún af völdum aðgerða hryðjuverkamanna fengist enn hærri tryggingaupphæð greidd. Rannsakendur málsins hafa nú komist að því að hún hafi átt að vera skotmarkið árið 2005 þegar eiginmaður hennar sendi út tölvupóst þar sem hann óskaði eftir leigumorðingja til að koma í kring „endanlegum starfslokum" hennar eins og það var orðað þar. Ekkert varð þó úr þeirri framkvæmd. Við leit á heimili Bachners, sem er fjármálaráðgjafi og á hlut í hugbúnaðarfyrirtæki, fundust fölsuð skilríki sem líkjast áttu skilríkjum starfsmanna leyniþjónustunnar CIA, níu millimetra Glock-skammbyssa og 50 hnífar. Af 64 tetródótoxín-ambúlum reyndust 19 horfnar og vildi saksóknari í málinu ekki tjá sig um hvort almenningi gæti mögulega stafað ógn af þeim. Einnig uppgötvaðist bankareikningur með 183.000 bandaríkjadölum, jafnvirði rúmlega 14 milljóna króna, sem eiginkona Bachners hafði ekki vitneskju um.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Sjá meira