Ísraelar sleppa 200 föngum 25. ágúst 2008 12:24
Stjórnvöld í Ísrael slepptu í dag tvö hundruð palestínskum föngum úr haldi. Fangarnir fengu frelsi nokkrum klukkustundum áður en Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna lendir í Ísrael í þeim tilgangi að halda friðarferli Ísraela og Palestínumanna gangandi. Fjölskyldur fanganna fögnuðu ákaft þegar ástvinir þeirra voru látnir lausir í Beituina, nálægt Ramallah á vesturbakkanum. Talsmaður Ísraelsstjórnar segir að ákvörðun um lausn þeirra hafi ekki verið auðveld því sumir þeirra hefðu átt þátt í árásum á óbreytta borgara í Ísrael. Tveir fanganna voru settir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á ísraelskum borgurum fyrir um þrjátíu árum. Langflestir fanganna sem fengu að fara heim í morgun voru þó teknir fyrir minni sakir. Alls eru um níu þúsund palestínskir fangar í haldi í Ísrael og velflestar palestínskar fjölskyldur eiga ættingja eða vini í ísraelsku fangelsi. Með fangalausninni vonast Ísraelsstjórn til að styrkja Mahmoud Abbas forseta palestínsku heimastjórnarinnar í sessi. Hann þarf að sanna fyrir þjóð sinni að friðarsamningar við Ísrael skili einhverju áþreifanlegu - á meðan hægt gengur í viðræðum um varanlegan frið. Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Ísraels í dag og vonast til að koma meiri hreyfingu á þær viðræður. Bush Bandaríkjaforseti vill samninga fyrir árslok - en flestir sem að viðræðunum koma viðurkenna að ólíklegt sé að hann nái því markmiði að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs áður en hann fer frá sem forseti í janúar á næsta ári.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Sjá meira