Flogaveikilyf getur ýtt undir sjálfsvígshugsanir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. desember 2008 08:13 MYND/Media.rd.com
Flogaveikilyfið Topamax getur ýtt undir sjálfsvígshugleiðingar þeirra sem það nota. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna krefst þess að héðan í frá verði umbúðir lyfsins kirfilega merktar aðvörunum þess efnis að notkun þess geti aukið hættuna á því að neytandinn stytti sér aldur eða hugleiði það að minnsta kosti. Eftirlitsmenn stofnunarinnar gaumgæfðu 199 kannanir sem snerust um 11 mismunandi flogaveikilyf og aukaverkanir þeirra. Niðurstaða þeirra athugana leiddi í ljós svo ekki varð um villst að sjálfsvígshugsanir hjá notendum þessara lyfja jukust um 80 prósent og var þar einkum um að ræða lyf frá framleiðendunum Johnson & Johnson og GlaxoSmithKline. Russell Katz, yfirmaður geðlyfjaeftirlitsdeildar lyfjaeftirlitsins, segir í viðtali við Bloomberg að læknum beri að fylgjast mjög ítarlega með andlegu ástandi þeirra sjúklinga sem þeir ávísa flogaveikilyfjunum og ávísa þeim alls ekki verði vart við minnstu bresti í sálarlífi sjúklinganna. Það er skammt stórra högga á milli í lyfjabransanum en Vísir greindi frá því í vor þegar lyfjarisanum Merck var stefnt fyrir að ráða sérfræðinga til að leggja nöfn sín við fræðigreinar í fagtímaritum um verkjalyfið Vioxx þrátt fyrir að þeir hefðu varla komið nálægt rannsóknum á því.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira