Björn segir Jóhannes í Bónus hóta vopnavaldi 6. júlí 2008 23:02
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsir undrun sinni og harmar málflutning þeirra Árna Johnsens, flokksbróður síns, og Jóhannesar Jónssonar í Bónus vegna Baugsmálsins. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag ritaði Árni grein í Morgunblaðið þar sem hann sakar stjórnvöld um valdníðslu og ofsóknir á hendur Baugsmönnum. Þá sagði Jóhannes í samtali við Vísi í dag að hann væri að undirbúa stefnu á hendur ríkinu vegna Baugsmálsins. Þar sagði hann enn fremur að að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hlytu að vera knúnir til að segja af sér embættum sínum. Það væri forkastanlegt hvernig þeir hefðu hagað sér. „Svo eru þessir menn að tala um að það þurfi að koma upp vopnuðu liði. Framkoma þessara manna við fólkið í landinu er á þann veg að það getur orðið til þess að fólk grípi til vopna gagnvart þeim. Þannig að það er kannski ekki skrítið að þeir vilji efla vopnaburð," segir Jóhannes. Björn svarar þessu á heimasíðu sinni og spyr hver hafi verið að tala um vopnað lið. ,,Hvorki Haraldur Johannessen né ég. Þennan hugarburð ber Jóhannes á borð, um leið og hann lætur í veðri vaka, að við Haraldur verðum beittir vopnavaldi af almenningi - væntanlega vegna Baugsmálsins. Er líklega einsdæmi, að áhrifamaður í viðskiptalífinu, og þótt víðar væri leitað, skuli tala á þennan veg. Fyrir síðustu þingkosningar notaði Jóhannes auð sinn til að auglýsa andúð sína á mér með hvatningu um að strika nafn mitt af framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavík suður. Nú telur hann sig tala í nafni almennings um vopnaburð gegn okkur ríkislögreglustjóra," segir Björn. Björn segir að það sýni hve lítið mark sé takandi á hótun Jóhannesar að hún sé ekki fréttnæm utan vefmiðils Baugs eins og hann kallar Vísi. ,,Á hinn bóginn er víða vitnað til heitinga Árna Johnsens, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í garð réttarvörslukerfisins í tilefni af Baugsmálinu, en þær birtust í dag í Morgunblaðinu - hótar hann þó ekki að sýna neinum í tvo heimana með vopnavaldi. Ég lýsi undrun minni og harma dæmalausan málflutning þeirra beggja, Jóhannesar og Árna," segir Björn að lokum.
Tengdar fréttir Stefnan tilbúin í haust Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, segist ætla að stefna íslenska ríkinu vegna Baugsmálsins og telur að stefnan geti litið dagsins ljós í september eða október. Hann segir að lögfræðingar sínir vinni nú að málinu en það sé nokkuð flókið að fara yfir það. 6. júlí 2008 17:12 Stjórnarþingmaður sakar íslensk yfirvöld um valdníðslu og ofsóknir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar í haust að beita sér fyrir breytingum á lögum sem snúa að því að menn sem hafi hlotið skilorðsbundna dóma verði að víkja úr stjórnum fyrirtækja svo árum skipti. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir að þetta séu vitlaus lög og heimskuleg og því þurfi að spúla dekkið strax, eins og hann orðar það. 6. júlí 2008 13:51 Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira
Stefnan tilbúin í haust Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, segist ætla að stefna íslenska ríkinu vegna Baugsmálsins og telur að stefnan geti litið dagsins ljós í september eða október. Hann segir að lögfræðingar sínir vinni nú að málinu en það sé nokkuð flókið að fara yfir það. 6. júlí 2008 17:12
Stjórnarþingmaður sakar íslensk yfirvöld um valdníðslu og ofsóknir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar í haust að beita sér fyrir breytingum á lögum sem snúa að því að menn sem hafi hlotið skilorðsbundna dóma verði að víkja úr stjórnum fyrirtækja svo árum skipti. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir að þetta séu vitlaus lög og heimskuleg og því þurfi að spúla dekkið strax, eins og hann orðar það. 6. júlí 2008 13:51