Erlent

Meira en 20 þúsund hafa sýkst af kóleru í Zimbabwe

Robert Mugabe, forseti Zimbabwe
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe

Yfir tuttugu þúsund manns hafa sýkst af kóleru í Zimbabwe síðan í ágúst. Robert Mugabe forseti segir að Bretar hafi komið faraldrinum af stað.

Heilbrigðiskerfið í Zimbabwe er hrunið eins og aðrir innviðir landsins. Það var því gjörsamlega óhæft til þess að takast á við kólerufaraldurinn.

Umfang hans hefur ekki gjörla verið vitað fyrr en nú að Sameinuðu þjóðirnar hafa upplýst að yfir 20 þúsund manns hafi smitast og af þeim hafi á annað þúsund látið lífið.

Stjórnvöld í Zimbabwe segja að búið sé að komast fyrir faraldurinn en ekki er lagður mikill trúnaður á þær fullyrðingar.

Nágrannaríki hafa gripið til ráðstafana á landamærum sínum að Zimbabwe til þess að reyna að koma í veg fyrir að smit berist til þeirra.

Í Suður-Afríku hafa til dæmis verið settar upp neyðarsjúkrastöðvar á landamærunum til þess að taka á móti þeim sem koma sýktir þangað yfir.

Robert Mugabe forseti Zimbabwe hefur sífrað á því að allt illt sem hent hefur land hans sé Vesturlöndum að kenna.

Hvað kóleruna snertir segir að að Bretar hafi hrundið faraldrinum af stað með því að bera út smit af ásettu ráði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×