Erlent

Varpaði stórfé úr flugvél til að kynna bók

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Waringin lætur seðlana vaða út í háloftin.
Waringin lætur seðlana vaða út í háloftin. MYND/AP

Indónesíski rithöfundurinn og kaupsýslumaðurinn Tung Desem Waringin varpaði í gær 100 milljónum rúpía, jafnvirði tæplega 900.000 króna, úr flugvél á flugi rétt utan við borgarmörk höfuðborgarinnar Jakarta.

Var gjörningnum ætlað að vera þáttur í kynningu á nýjustu bók Waringins en sjálfshjálparbækur hans hafa selst metsölu í Indónesíu. Segir Waringin mun skynsamlegra að gefa þurfandi fólki fé sem ella færi í auglýsingaherferðir sem engu skiluðu.

Lögregla í Jakarta lagði að vísu blátt bann við þessu tiltæki rithöfundarins sem er ástæðan fyrir því að hann dreifði fénu utan borgarmarkanna. Milljónir Indónesa lifa á fé sem samsvarar um 150 krónum á dag. Árið 2005 kynnti Waringin fyrstu bók sína með því að fara um götur Jakarta á hestbaki, klæddur sem kunnasta stríðshetja Indónesíu.

Reuters greindi frá.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×