Erlent

Vopn fundust í íbúð Bandidos-manna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Hríðskotarifflar og sprengiefni var meðal þess sem lögregla á Norður-Sjálandi í Danmörku lagði hald á í gær þegar ráðist var til inngöngu í íbúð sem fjórir félagar bifhjólasamtakanna Bandidos héldu til í.

Einn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur meðan á rannsókn málsins stendur en aðgerðin var framkvæmd í kjölfar þess er lögregla fylgdist með mönnunum um hríð. Lögregla segir mennina hafa verið í slagtogi með glæpaklíku innflytjenda en vildi ekki tjá sig um það hvort hún telji eitthvað sérstakt hafa verið í bígerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×