Erlent

Þjóðir mega senda herskip gegn sjóræningjum við Sómalíu

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt einróma að öllum þjóðum sé heimilt að senda herskip inn í landhelgi Sómalíu til að berjast gegn sjóræningjum sem þar hafa herjað lengi.

Ályktunin gengur út á að þær þjóðir sem semja um slíkt við bráðabirgðastjórn Sómalíu geti beitt öllum ráðum til að berjast gegn sjóræningjum næstu sex mánuðina.

Á undanförnu ári hafa sjóræningjar lagt hald á 26 skip innan landhelgi Sómalíu og oftast hafa útgerðir skipanna þurft að borga himinhá lausnargjöld til að fá skip sín og áhafnir til baka.

Ályktunin var borin fram af Bandaríkjamönnum, Panama og Frakklandi en upphaflega vildu Frakkar að herskip fengju að athafna sig meðfram allri strönd Vestur-Afríku.

Samhliða þessari ályktun hófust samningaviðræður á vegum Sameinuðu þjóðanna við stríðandi fylkingar innan Sómalíu en landið hefur ekki haft kjörna ríkisstjórn síðan árið 1991. Landið hefur logað í átökum og hefur tilvera friðargæslusveita frá öðrum Afríkuríkjum lítið sem ekkert dregið úr átökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×