Erlent

Finnar samþykkja Lissabon-sáttmálann

MYND/AP

Finnska þingið samþykkti í dag Lissabon-sáttmálann svokallaða, sem segja má að sé ný stjórnarskrá Evrópusambandsins.

Í samningnum felsta endurbætur á stjórnkerfi sambandsins og ákvarðanatöku þess í kjölfar þess að aðildarfélögum fjölgaði úr 15 í 27. Sáttmálanum er ætlað að koma í stað stjórnarskrár sem franskir og hollenskir kjósendur höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir um þremur árum.

151 þingmaður á finnska þinginu samþykkti sáttmálanna en 27 lögðust gegn honum og verður hann því sendur til Törju Halonen, forseta landsins, til staðfestingar.

Ekki er víst að sáttmálinn hljóti náð fyrir augum allra aðildarlandanna því Írar hyggjast halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hann á morgun. Þar er mjótt á mununum hjá andstæðum fylkingum samkvæmt skoðaðakönnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×