Stórglæsilegt mark Jóhannesar Karls Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. september 2008 13:28 Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley. Nordic Photos / Getty Images
Jóhannes Karl skoraði í sínum öðrum leik í röð fyrir Burnley í ensku B-deildinni í gær. Jóhannes var í fyrsta sinn í byrjunarliði Burnley á tímabilinu er liðið mætti Preston North End. Gestirnir komust yfir á 22. mínútu en Jóhannes Karl jafnaði metin fyrir Burnley ellefu mínútum síðar. Markið var stórglæsilegt. Hann fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Preston og lét einfaldlega vaða af skotinu og boltinn söng í netmöskvanum. Í síðari hálfleik skoruðu leikmenn Burnley tvívegis og unnu því 3-1 sigur. Jóhannes Karl spilaði allan leikinn í liði Burnley. Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn í liði Coventry sem gerði 1-1 jafntefli við Blackpool. Þá lék Brynjar Björn Gunnarsson sinn fyrsta deildarleik með Reading í mjög langan tíma en bæði hann og Ívar Ingimarsson var í byrjunarliðinu í gær. Reading vann 4-0 sigur á Swansea en Brynjar Björn lék fyrstu 70 mínútur leiksins en Ívar allan leikinn að venju. Reading er í þriðja sæti deildarinnar með fjórtán stig en Wolves (22 stig) og Birmingham (19 stig) hafa nú þegar tekið nokkra forystu í deildinni. Coventry er í sjöunda sæti með tólf stig, rétt eins og Burnley sem er í áttunda sæti.
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira