Erlent

Stórt hneyksli í breska hernum vegna þyrlukaupa

Breski herinn glímir nú við stórt hneyksli í tengslum við kaup á átta Chinook þyrlum fyrir hátt í 75 milljarða króna.

Byrjað var að afhenda þyrlurnar árið 2001 en enn sem komið er hefur engin þeirra komist í notkun á vígvelli. Á meðan hefur breski herinn í Afganistan kvartað sáran undan skorti á þyrlum af þessu tagi.

Svo virðist sem breska varnarmálaráðuneytið hafi gleymt því að panta lykilorðin að flóknu tölvukerfi þyrlanna og ekki hirt um að gera það eftir að þau mistök komu í ljós. Því er aðeins hægt að fljúga þyrlunum í heiðskíru og stilltu veðri og ekki ofar en 500 fet. Þyrlurnar voru hinsvegar einkum ætlaðar sérsveitum hersins til notkunnar að næturlagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×