Sprakk í tætlur í líkbrennsluofni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. desember 2008 08:15 Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Moonbattery.com
Kínverji sem talið var að látist hefði af völdum eldingar lést í raun þegar hann varð fyrir eldflaug sem ætlað var að framkalla rigningu. Lík hans sprakk svo í brennsluofninum. Nágrannar Wang Diange í norðurhluta Kína þóttust fullvissir um að hann hefði orðið fyrir eldingu þegar þeir komu að húsi hans í rúst í hellirigningu og þrumuveðri. Gengið var út frá þessu sem sjálfsagðri skýringu þar til kom að útför mannsins en hans hinsta ósk hafði verið að jarðneskar leifar hans yrðu brenndar. Ekki hafði líkið þó verið lengi í brennsluofninum þegar ofninn sprakk í tætlur að viðstöddum steini lostnum ættingjum Diange sem máttu teljast stálheppnir að verða ekki fyrir málm- og múrbrotum sem þeyttust í allar áttir. Þegar viðstaddir höfðu komist yfir mesta áfallið var farið að rannsaka málið og fundust þá ýmsir torkennilegir hlutir á vettvangi sem augljóslega voru ekki úr ofninum. Með fulltingi sérfræðinga fékkst að lokum sú niðurstaða að Wang Diange lést þegar eldflaug sem innihélt silfurjoðíð lenti á húsi hans og ein sprengihleðslan úr flauginni endaði inni í líkama hans og sprakk við líkbrennsluna. Eldflaugar af þessari gerð eru notaðar til að breyta hagléli í regn til að vernda tóbaksakra. Er of langsótt að segja að Diange hafi látist af völdum tóbaks?
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira