Erlent

Rannsaka samtal milli fimm Guantanamo-fanga

Bandaríkjaher ætlar að láta rannsaka hvernig á því stóð að fimm Guantanamo-fangar fengu að tala saman þegar verið var að birta þeim ákæru á fimmtudag.

Talið er að einn þeirra hafi ætlað að þiggja lögfræðiaðstoð hersins en hinir fjórir haldið reiðilestur yfir honum. Á endanum þáði enginn þeirra verjanda úr lagadeild hersins og tveir sögðust vart geta beðið eftir því að deyja sem píslarvottar.

Réttarhöldin fara fram samkvæmt sérstökum lögum sem sett voru um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×