Ísraelar opna landamærin að Gaza 26. desember 2008 13:30
Ísraelar opnuðu í morgun landamærin að Gaza þannig að hægt væri að flytja hjálpargögn þangað. Landamærin hafa verið lokuð um nokkurt skeið. Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, ákvað að opna fyrir flutning hjálpargagna til íbúa Gaza eftir að hann hafði ráðfært sig við öryggissérfræðinga. Alþjóðasamfélagið hafi þrýst á að þetta yrði gert. Áttatíu flutningabílar fluttu lyf, matvæli og ýmsar aðrar vörur yfir landamærin í morgun. Opnað var fyrir flutningana þrátt fyrir að ísraelsk stjórnvöld hafi gert herskáum Palestínumönnum á Gaza grein fyrir því að gripið yrði til aðgerða ef flugskeytaárásum á ísraelskt landsvæði frá Gaza yrði ekki þegar hætt. Flugskeytum var skotið í morgun en engan sakaði. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði að ekki yrði hikað við að gera loftárásir á Gaza ef ekki yrði lát á flugskeytaárásunum. Hálfs árs vopnahlé milli Ísraela og Hamas-samtakanna, sem ráða lögum og lofum á Gaza, rann út fyrir viku en það var ekki endurnýjað. Sérfræðingar í mannúðarmálum hjá Sameinuðu þjóðunum hafa varað við slæmu ástandi á Gaza vegna landamæralokunarinnar og sagt að stefndi í hörmungar í mannúðarmálum. Fjórir af hverjum fimm íbúum á Gaza treysti á matargjafir mannúðarsamtaka en vöruhús Sameinuðu þjóðanna á svæðinu séu tóm. Ekki berist nægilega mikið miðað við það sem þurfi. Ísraelar segja óvíst hversu lengi landamærin verði opin. Ísraelar lokuðu landamærunum í nóvember eftir að hafa opnað þau í skamman tíma til að leyfa flutning á mat og eldsneyti til íbúanna.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira