Erlent

Bush ósammála hæstarétti

George Bush sagðist í dag ætla að una úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna frá því fyrr í dag sem kveður á um að fangar í Guantanamo fangabúðunum eigi rétt á því að skjóta málum sínum til dómstóla.

"Ég uni dómnum, en það þýðir ekki að ég sé sammála honum," sagði Bush við blaðamenn í Róm. "Við munum skoða þennan úrskurð til þess að finna út hvort frekari lagasetninga sé þörf," bætti hann við.

Hæstiréttur Bandaríkjanna klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Fimm dómarar við réttinn voru fylgjandi en fjórir á móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×