Erlent

Anders Fogh ætlar ekki að biðja al-Qaeda afsökunar

Anders Fogh Rassmusen
Anders Fogh Rassmusen

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur segist ekki taka það í mál að biðja hryðjuverkasamtökin al-Qaeda afsökunar eins og þau kröfðust þegar samtökin lýstu ábyrgð á árásinni á danska sendiráðið í Pakistan á hendur sér.

Á fréttavef Nyhedsavisen segir hann að í Danmörku sé fjölmiðlafrelsi og að fólk eigi rétt á því að hugsa, tala, trúa og teikna eins og það vill. Hann heldur því fram að hryðjuverkamennirnir noti teikningarnar aðeins sem afsökun. Hann segir einnig að hryðjuverkamenn eigi ekki að fá að ráð danskri utanríkisstefnu og að Danir ætlu engu að breyta varðandi utanríkisstefn sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×