Erlent

Tsvangirai handtekinn í annað sinn í dag

Lögreglan í Simbabve handtók forsetaframbjóðandan Morgan Tsvangirai í annað sinn á skömmum tíma þegar hann var á leið inn í bæinn Gweru til þess að halda kosningafund í dag.

Tsvangirai og föruneyti hans er nú í haldi lögreglunnar í bænum. Hann var handtekinn fyrr í dag við vegartálma við bæinn Kwekwe en sleppt tveimur tímum síðar.

Tsvangirai berst við forseta Simbabve, Robert Mugabe í forsetakosningum sem fara fram í landinu þann 27. júní.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×